Félagskapur, Vinátta og Fjör
Round Table 16 er öflugur félagsskapur ungra manna Í Fjarðabyggð á aldrinum 20 til 45 ára. Við erum fjölbreyttur hópur úr hinum ýmsu starfsstéttum sem deilum þeirri hugsjón að efla sjálfa okkur og samfélagið okkar.
Okkar markmið er að leiða saman kraftmikla menn úr ólíkum áttum til að dýpka skilning okkar á þjóðfélaginu og styrkja stöðu einstaklingsins innan þess. Hjá okkur mætist reynsla og fersk sýn í lifandi umhverfi þar sem hver fundur og hvert verkefni er tækifæri til vaxtar.
Við lifum eftir einkunnarorðum okkar: „Í vináttu og samvinnu“. Með því að rækta tengslin hér heima og erlendis, víkkum við sjóndeildarhringinn og byggjum brýr sem endast út ævina.
Einkunnarorð Round Table eru Tileinka - Aðlaga - Bæta, á heimsvísu: Adopt – Adapt – Improve.
Round Table 16 er stoltur aðili að Round Table Ísland.
Fylgist með okkur.
ViðburðirRT-16 og LC-19 Halda Klikkað AGM 2027 á Egilstöðum/Fjarðabyggð
-
Pre-Tour
Fundir
Partý
GALA
Hafðu Samband
Ef það eru einhverjar spurningar. Ekki hika við að hafa samband.